Sáraumbúðir Biatain Silikon 15X15 cm.

Biatain® Silicone sáraumbúðir eru mjúkar og sveigjanlegar svampumbúðir með húðvænum silikon límkanti. Biatain® Silicone sáraumbúðir henta á margar tegundir vessandi sára sem gera þær ákjósanlegt val í rakri sáragræðslu.

Vörunúmer: 10168233
+
1.948 kr
Vörulýsing
  • Yfirburða rakadrægni og einstök þrívíddaruppbygging (3D) svampsins.
  • Þegar umbúðirnar komast í snertingu við sáravessann laga þær sig að sárabeðnum og draga til sín raka þökk sé þrívíddaruppbyggingu Biatain® Silicone – líka undir þrýstingi (3).
  • Þrívíddar svampurinn dregur til sín sáravessann staðbundið og lóðrétt og hann, ásamt sérstöku rakabindandi lagi, heldur sárinu röku, sem er mikilvægt fyrir sárgræðsluferlið. Einstakir hæfileikar til að draga til sín og halda í sér vessa, minnka verulega áhættuna á soðnum sárabörmum og leka.

Mýkt og sveigjanleiki
Silikon sárasnertilagið tryggir að umbúðir sitja vel, á sama tíma og lítils sársauka verður vart þegar þær eru fjarlægðar (1,2). Mjúkar og sveigjanlegar umbúðirnar gera, að auðvelt er að festa þær á erfið svæði og mjúkur púðinn er þægilegur - líka í tengslum við þrýstingsmeðferð (2).

Meðfæranleiki
3ja þrepa snertilaus ásetning Biatain® Silicone tryggir auðvelda meðhöndlun umbúða og hreina ásetningu (non-touch).

Skiptitíðni
Þökk sé einstakri rakadrægni gætir þú séð fækkun skiptinga um allt að 50% (3,4).

Notkun

Biatain® Silicone eru hentugar á margar gerðir vessandi krónískra og akút sára s.s. á fótasár, þrýstingssár, sykursýkisfótasár sem ekki eru sýkt, donorsvæði, skurðsár og slysasár (t.d. fleiður, rifur og skurði). Umbúðirnar henta vel undir þrýstingsmeðferð og mega vera á sári í allt að 7 d

Innihald

Biatain® Silicone eru mjúkar og sveigjanlegar polyurethan svampumbúðir með yfirborðsfilmu sem er gegndræp fyrir raka en vatns- og bakteríuheld. Auk þess er lag sem hefur einstaka rakadrægni og íheldni svo kallað "lock-away" lag og mjúkur silikon límkantur.

Tengdar vörur